Borg fasteignasala 519-5500 kynnir til sölu 581 fermetra skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum í lyftuhúsi við Grensásveg í Reykjavík. Skiptast hæðirnar í 2. hæðina, 377,7 fermetrar í opnu vinnurými með parketi á gólfum og fundarherbergi. Þrjú endurnýjuð salerni eru á hæðinni og kaffiaðstað/eldhús. Á 3. hæðinni eru 203,4 fermetra í opnu rými með dúk á gólfi og tvö lokuð fundarherbergi. Tvö endurnýjuð salerni eru á hæðinni. Húsnæðið er laust til afhendingar strax.
Nánari upplýsingar veita Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði