Borg fasteignasala kynnir: Fallegt og hlýlegt sumarhús til sölu á fallegum og friðsælum stað á Efristíg 12 í Kárastaðalandi við Þingvallavatn. Kyrrð, útsýni og gönguleiðir í þjóðgarðinum er það sem gerir þennan bústað að paradís fyrir fjölskylduna. Stutt frá höfuðborgarsvæðinu, aðeins 25 mín. akstur frá Mosfellsbæ. Sumarbústaðurinn var byggður í Reykjavík um 1940 en fluttur á Þingvelli 1984. Bústaðurinn er samtals um 105 fm að gólffleti en er skráður skv. fasteignaskrá 61 fm.
Óskráður er milligangur 4 fm og risið um 40 fm að gólffleti. Lóðin er 10.000 fm að stærð og er leigulóð í eigu Ríkissjóðs Íslands. Lóðarleigusamningur hefur verið nýlega endurnýjaður og er hann framlengdur um 10 ár í senn.
Efristígur 12 er í landi Kárastaða á Þingvöllum og tilheyrir Þjóðgarðinum. Rafmagns ofnar og hitakútur er fyrir neysluvatn. Verönd er við húsið og rafmagnspottur. Nýleg rotþró.
Komið er inn í miðju bústaðarins, til vinstri er gott svefnherbergi og baðherbergi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými með fallegu viðargólfi. Baðherbergi með sturtu. Kamína í stofu, annars rafmagnskynding með nýlegum ofnum. Milligangur 4 fm, þar er aðstaða fyrir þvottavél og útgengi í tvær áttir. Geymsla er skráð 13,5 fm sem mætti breyta í gestahús.
Í risi er rúmgott svefnloft, þar er gólfflöturinn um 40 fm. Einstakt útsýni, tvö svefnrými sem auðveldlega rúma amk. fjóra. Hár kvistur, lofthæðin er ca 2m í miðjunni, fallegir gluggar til beggja átta. Til afhendingar við kaupsamning. Stór hluti innbús getur mögulega fylgt ef óskað er.
Fallegur og hlýlegur bústaður við Þingvallavatn í Þjóðgarðinum, á þessum stórfenglega stað.
Nánari upplýsingar:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali, s. 844 6447, [email protected]
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill BORG fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.