Verið er að hlaða..
101 Reykjavík (Miðbær)

Þórsgata 12

  • Fjölbýli
  • 123 m2
  • 4
104.900.000 Kr.
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img

Borg fasteignasala kynnir til sölu: Sérstaklega glæsileg íbúð að Þórsgötu 12, 101 Reykjavík. Miðbæjaríbúð í fallegu sex íbúða húsi við fallega götu. Íbúðin var endurnýjuð mjög smekklega árið 2017. Í íbúðinni eru þrjú herbergi, stofa, eldhús og sérlega glæsilegt baðherbergi.
Draumaíbúð fyrir fagurkera.
 

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin 123,3 fm, íbúð 115,8 fm og sérgeymsla 7,5 fm. Húsið stendur á eignarlóð.
 
Nánari lýsing:
Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2017, ný gólfefni, eldhús og baðherbergi.
Gegnheilt eikarparket sem er lagt í fiskibeinamynstur er á stofu, hjónaherbergi og í holi. 
Tvö önnur svefnherbergi eru teppalögð. 
Flísar eru á gólfi í eldhúsi og á baði.
 
Komið er inn í hol þar sem er fataskápur. Samliggjandi stofa og borðstofa með gluggum í suðaustur, úr stofu er gengið út á suðaustur svalir.
Inn af stofu er svefnherbergi sem er lokað af með fallegri stálglerhurð. Í svefnherberginu er fataskápur.
Á gangi frá holi eru tvö svefnherbergi með fataskápum.
Á baðherbergi er flísalagt gólf og veggir lagðir marmaraflísum. Hreinlætis- og blöndunartæki eru nýleg, baðkar og hiti í gólfi.
Eldhúsið er mjög rúmgott með eldhúsinnréttingu og 120 cm Smeg gaseldavél ásamt innbyggðum ísskáp og tengi fyrir þvottavél.
 
Í kjallara eru sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. Stigahús er bjart og snyrtilegt. 

Í húsinu eru aðeins sex íbúðir. Gott viðhald hefur verið á húsinu í gegnum árin og hefur það verið talsvert endurnýjað síðustu ár. Árið 2019 voru skólplagnir fóðraðar, 2021 var húsið viðgert og málað og þakið endurnýjað.
 
Sérstaklega glæsileg íbúð í fallegu húsi á horni Þórsgötu og Baldursgötu. Miðbæjaríbúð sem hefur verið endurnýjuð á mjög smekklegan hátt.
 

Nánari upplýsingar:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari.
s. 844 6447 - [email protected]

Sækja söluyfirlit

Söluyfirlit

Skráðu netfangið þitt hér og við sendum þér söluyfirlit eignarinnar um hæl.

Leitaður að heimili

Hvað getum við gert?

Við finnum draumaheimilið þitt

Skráðu þig á kaupendalista. Í sameiningu finnum við réttu eignina.

Kaupendalisti

Við seljum eignina þína

Skráðu eignina hjá okkur. Við verðum þér innan handar í söluferlinu.

Eignarskráning

Við aðstoðum þig hvert fótmál

Hvort sem þú ert að kaupa eða selja leggjum við okkur fram um að veita góða, faglega og persónulega þjónustu.

Um Borg