Verið er að hlaða..
210 Garðabær

Lyngás 1D

  • Fjölbýli/Fjölbýlishús með lyftu
  • 100 m2
  • 4
72.700.000 Kr.
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img
img

Borg fasteignasala kynnir: Fallega 4 herbergja fjölskylduíbúð að Lyngási 1D á 4. hæð í lyftuhúsi. Húsið er í vel staðsett í hjarta Garðabæjar.
Þrjú svefnherbergi, stofa og eldhús í opnu rúmgóðu rými. Sérgeymsla í sameign og stæði í bílageymslu. Bakgarðurinn er mjög fjölskylduvænn með leiktækjum og bekkjum.
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

 
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin skráð 100,4 fermetrar, þar af er sérgeymsla 8,4 fermetrar. Auk þess er sérmerkt bílastæði í bílgeymslu, merkt B55.
Nánari lýsing:

Íbúðin er á fjórðu hæð í lyftuhúsi.
Forstofa með fataskáp.
Eldhús með hvítri innréttingu, dökkum borðplötum ásamt góðu skápa- og borðplássi. Tvöfaldur ísskápur fylgir með.
Stofa og borðstofa í björtu rými með góðum gluggum og útgengi á svalir sem snúa að bakgarðinum.
Svalir 6,7 fm snúa til vesturs.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð og með fataskápum.
Baðherbergi með sturtu, hvítri nnréttingu, gott skápapláss, handklæðaofni og upphengdu salerni. Dökkar flísar á gólfi og ljósar á veggjum.
Þvottahús er innan íbúðar.
Gólfefni íbúðar er harðparket og flísar á baðherbergi.
8,4 fm sérgeymsla fylgir íbúð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílgeymslu, merkt B55.
Húsið var byggt árið 2015.
Góð og vel staðsett eign í vinsælu hverfi í Garðabæ. Stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttastarf, sundlaug, matvöruverslanir ofl.

Nánari upplýsingar: Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali, s. 844 6447 / [email protected]
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Vill BORG fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

 
 

Sækja söluyfirlit

Söluyfirlit

Skráðu netfangið þitt hér og við sendum þér söluyfirlit eignarinnar um hæl.

Leitaður að heimili

Hvað getum við gert?

Við finnum draumaheimilið þitt

Skráðu þig á kaupendalista. Í sameiningu finnum við réttu eignina.

Kaupendalisti

Við seljum eignina þína

Skráðu eignina hjá okkur. Við verðum þér innan handar í söluferlinu.

Eignarskráning

Við aðstoðum þig hvert fótmál

Hvort sem þú ert að kaupa eða selja leggjum við okkur fram um að veita góða, faglega og persónulega þjónustu.

Um Borg