Um fasteignasöluna Borg
Vöxtur fasteignasölunnar Borgar hefur verið samfelldur frá því að fyrirtækið hóf rekstur árið 2013 með fimm starfsmenn. Í upphafi var starfsemin til húsa að Ármúla 7 í Reykjavík en frá því í október 2014 að Síðumúla 23 í Reykjavík. Í dag starfa á fasteignasölunni fjórtán manns og þar af tólf löggiltir fasteignasalar. Þrír hinna löggiltu fasteignasala eru einnig lögmenn. Viðskiptavinir Borgar koma úr öllum áttum og eignasafn fasteignasölunnar frá upphafi verið fjölbreytt. Frá upphafi hefur verið lögð mikil áhersla á hátt þjónustustig á öllum stigum og vandaða skjalagerð, allt frá fyrsta viðtali til afsals um einstakar fasteignir og öfluga eftirfylgni í einstökum málum.
Traustur grunnur og öflugt tengslanet
Starfsfólk fasteignasölunnar hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu í fasteignaviðskiptum og liggur sérstaða fasteignasölunnar fyrst og fremst í mannauði fyrirtækisins og þéttum kjarna sem starfað hefur saman í langan tíma og hefur öflugt tengslanet. Ekki síst er reynsla og þekking fasteignasölunnar í margvíslegri skjalagerð sem krefst yfirlegu og nákvæmni. Starfsmannavelta hefur verið lítil og valinn maður í hverju rúmi.
Fasteignasalan mun halda áfram að byggja á góðu orðspori þar sem fara saman öguð vinnubrögð, traust þjónusta og vönduð skjalagerð.
Starfsmenn fasteignasölunnar Borgar er að finna hér.